Það er ekki hægt að segja annað en seinni bylgja af múgæsingu
fari nú um landsmenn vegna þess eineltis sem við verðum fyrir af
hendi KSÍ mafíunar vegna húðlitar búninga okkar. Fólk er búið að fá
nóg. Sem dæmi þá höfum við BN menn undanfarin ár reynt að
ná samkomulagi við KSÍ um verðuga mótherja í bikarnum. Ýtrekað
hafa KSÍ menn horft framhjá óskum okkar. Nú sem oft áður
erum við látnir byrja í forkeppninni og eigum að mæta
systurfélagi okkar, Kattavinafélag Eskifjarðar (les KE). Greinilegt
að það á bara 1 félag úr Fjarðabyggð að lenda í undanúrslitum.
Þetta árið settum við fram þá kröfu að mæta Neistamönnum á
Djúpavogi í sól og hita. Þess í stað fara Neistamenn beint í fyrstu
umferð en við eigum að spila í frosti í byrjun Maí. Hver eru rökin
fyrir þessu? Við náðum betri árangri á síðasta ári í bikarnum en
Neisti. Við vorum yfir í leiknum á móti þeim í 35 mínútur en
þeir í 3 mínútur. 35-3=32 mínútur í mun. Eða hvað KSÍ?
Markatala Neista í bikarkeppninni á síðasta ári var neikvæð 2-6
en okkar mun jákvæðari 1-2. Það er alveg sama hvernig horft er
á málið, staðreyndirnar tala sínu máli.
KSÍ undirstrikar svo illsku sína þegar þeir láta okkur mæta
Sindra á Hornafirði í seinni umferð forkeppninnar. Við erum engan
vegin vanir að spila á jafnsléttu né snarrótarlausum
velli. Þegar við höfum svo afgreitt Sindra verður
forkeppninni framhaldið og framhaldið og...
KSÍ talar um fordóma gagnvart minnihluta hópum í íþróttum,
sem reyndar skv. þeirra skilgreiningu eru svo fjölmennir að þeir
eru meirihlutahópar. Sjálfir traðka þeir á liðum sem eru í
grænum búningum. Sjáið Breiðablik á haustin.. Man einhver eftir ÍK?
eða ÍBÍ? eða Freyju úr Helgustaðahreppi? Þessi félög hurfu
sporlaust.
Svörum fyrir okkur og skiftumst á að hringja í
starfsmenn KSÍ (fólk á launaskrá) á næturnar á 10mínútna
fresti næstu vikurnar. Þessa vikuna og þá næstu látum við símtölum
dynja á númerið 896 4474. Munið að anda stíft í símann.