BOLTAFÉLAG NORÐFJARÐAR 1996
Könnun
Um hvern sagði Hörður magg eftirfarandi (NOT): Aldrei hefur jafn seinn leikmaður ráðið jafn lítið við hraðann?
Varða
24 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 24
Manneldisdeild
Klukkan
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
29.01.2006 16:01:34 / siggih

Getraunaþjónusta BN ´96

Uppi eru hugmyndir af því að opna getraunaþjónustu BN. BN menn langa orðið að fá bita af þessari gullköku sem getraunir eru. Í  viðtali við BN fréttir sagði Sigurður Manager að verið væri að leita af lykilfjarfestum til að festa kaup á vikulegum getraunaseðlum. Einnig væri verið að svipast um eftir góðri aðstöðu til að hýsa þjónustuna.

Ef af þessu verður verður að sjálfsögðu getraunaleikur með hefðbundnu sniði, 10 krónu leikur og svo frjáls leikur þar sem menn eru hvattir til að spara ekki aurinn. Vegleg verðlaun verða svo í báðum flokkum.

Þangað til vil ég minna á getraunanr. BN ´96 sem er 744 ég endurtek 744

kv. manager framkvæmdastjóri.


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.01.2006 11:05:47 / grétar

Hlóð Formaðurinn talar !

Sælir elsku pungarnir mínir.

Stjórn BN´96 ákvað það á fundi seint í gærkveldi(andvaka) að fá ekki til sýn þessa þrjá pilta sem okkur bauðst. Reynt verður í staðinn að mála einn af okkur í afturliggjanditískunegra stíl, svo við samræmumst evrópskum liðum enn frekar. Við svosum yfirfyllum minnihluta kvótann með þremur rauðhærðum dvergum (þarf að vera einn. (dvergur = <1,80m hæð(skilgreining stjórnar)). Hrundið verður könnun/samkeppni af stað á síðunni, síðar, hver komi til álita í stöðuna(verða varir mikill áhrifa þáttur).

Enn að öðrum málum,

Þá eru Þessir ótrúlega merkilegu ”milestones” framundan hjá BN´96:

 

 



Á laugardaginn 28.01.2006 nær:

Sigurður AðalHallur Frk.Stj. sinni 300uðstu æfingu fyrir BN´96.

 

 



Jón Hilmar Kárason Rit. Sinni 800uðustu hælsendingu(kominn í 799).

 

 



Gunnar Larsson VaraF. Er í 23-manna hópnum fyrir bikarleik KSÍ í 3ðja sinn.

 

 



Aðrar tölulegar staðreyndir:

Ari F. er kominn í 979 klúðruð dauðafæri

Kristinn er kominn í 8 ”Sidd”

Arnar Gumm er kominn í 97 sóló upp vinstri kantinn.

Og Varði er kominn uppí 13 ”blurrí” tæklingar á Seasoninu einu saman.

 

 



Síðan en ekki síst, Þá Kemur BN´96 til með að halda uppá 10ára stórafmæli sitt allt árið, Skipuð hefur verið nefnd sem forma á fögnuðinn og í henni sitja:

F.h. Stjórnar Varaf. G.S.Larsson (einnig form. nefndar)     [Söngur og drykkja]

Framkvæmdast. S. H. Jónsson.        [Alvarlegt gamanmál, drykkja og skrílslæti]

Ritarinn: J.H. Kárason                                                           [Ljóð og undispil]

Blaðafulltrúinn: Þ. Sigurbjörnsson                      [Almannahagsmunir og –tengsl]

Og úr röðum leikmanna: P. St. Arason.                          [Gjörningar og blástur]

 

 



Kv.Formaðurinn


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.01.2006 12:14:45 / singer

Ný könnun

Komið nú öll sæl um heim allann.

Það er komin ný könnun, og skýrir hún sig sjálf.

Hvað varðar síðustu könnun að þá komu flestir af fjöllum og næst flestir vildu kaupa einhvern úr Fannardal. Þar hefur nafn Þórðar Þórðarsonar jr borið  á góma.

En þrátt fyrir þessar niðurstöður að þá viljum við skora á Einar kirkjubóling til að mæta aftur á æfingar, og taka í höndina á Krist(n)i. Menn verða að sættast og gleyma. Einar verður bara að halda sig á mottunni í framtíðinni. Lítum á undanfarna atburði sem gult spjald.

Singer


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.01.2006 15:00:57 / grétar

Þessir koma líka til álita

Name                       :Festus Adekunle      Current Club    :

Surname                 :Bamgboye                 Height                :1.83

Date of Birth          :07/02/1985               Weight               :76kg

Nationality             :Nigerian                      Playing Position:Striker/ Midfielder

Languages spoken:English                       Prefered foot     :Right

Health/Work rate/ Fitness level : Excellent ;no limiting injuries or condition

 

 



PROFFESSIONAL CAREER 

 CLUB                                 POSITION
 Atlantic warriors f.c         Striker     
 Club Independetie            Striker            

 CROWN F.C                     Attacking Midfielder

 PYRAMID ROVERS       Attacking midfielder

 

 



  HONOURS                                            CLUB    

 *Div. 2 runners up                                    CLUB INDEPERENDENTIE

 *Won Promotion to                                  CROWN F.C

  Pro league Div.2(2001)

  *Amateur league 2nd runners up(2000)    PYRAMID ROVERS

  *Won SHOMOLU ZONAL League        PYRAMID ROVERS

  (1999)

 *F.A cup Semi Finalist                              Crown F.c Ogbomosho

------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Name                       :Nagin Stan          Current Club    : Unattached

Surname                 :Nelson                  Height                :1.78

Date of Birth          :01/ 10/1986         Weight               :70kg

Nationality             :Nigerian                Playing Position:Midfielder(Attacking/Defensive)

Languages spoken:English                 Prefered foot     :Right

 

 



PROFFESSIONAL CAREER 

CLUB                         
Mandela f.c ,Lagos ,Atlantic warriors f.c,Lagos        
Young Stars f.c ,imo , Crown f.c,Ogbomosho                    

Jets f.c,Lagos

 

 



  HONOURS                                            CLUB   

  *Won Promotion to                                  CROWN F.C

  Pro league Div.2(2001)

 *Amateur runners up(200)                        Crown f.c 

 *F.A cup Semi Finalist                             Crown F.c


> REFRENCES........MR.CALISTUS CHUKWUJEKWU FIFA BADGE REFERE  MEMBER,(NFA)NIGERIA REFEREES ASSOCIATION
> COACH KAYODE FAMUYIDE JOHNSON
CHEIF COACH SUNSHINE FC AKURE ONDO STATE,NIGERIA


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.01.2006 13:24:08 / grétar

Þetta var að berast !

Þetta var að berast og er stjórnin að setjast yfir málið í þessum töluðu orðum. Verið er að setja saman sumarleyfi BN manna og þörfina á nýju blóði !
Kv. Formaðurinn
Hi
I am a cameroonian willing to undertake a soccer test in your club.
my full name is EHAWA ELLAH FRANçIS DIDIER holding passport number 05/PS/49/862780. I am 20 years old and I was in a soccer training camps for three years.I play in a second division side(CAIMAN FC) for one year and I am presently training with a first division side.
I have very great talent I would like to explore and put in your service.
I would be responsable for my transportation and my stay during the test .
please just give me the opportunity to show what everybody knows about Cameroon football.
A reply in form of an invitation will be very greatfull
I look forward to hearing from you very soon
yours sincerely
EHAWA ELLAH.

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.01.2006 20:43:30 / siggih

Undirbúningstímabilið hafið

Fyrir þá sem ekki vissu þá eiga menn að skila 100 magaæfingum, 50 armbeygjum og komast á annað stig í þrekpróf eða svokölluðu píptesti. Það eru ca. 36 æfingar eftir fram að sumri þannig að menn verða að fara að hafa hraðann á ef þeir ætla að klára allar þessar æfingar!!!

Framkvæmdastjórinn


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.01.2006 00:39:31 / singer

Fámennt í kvöld

Það mættu einungis 12 æfinguna í kvöld. Skýringin ku vera að einhverjir voru að bera á sig kölnarvatn áður en lagt var af stað á sveitalubbablót og allnokkrir hafa ekki látið sjá sig vegna ótta við lyfjanefnd BN. Svo ber þess að geta að Jón Hilmar var heima að horfa á 3 seríu af stubbunum eins og hún leggur sig, með sérstaka áherslu á hegðun og atferli Tinky vinky.

Ákveðið hefur verið að leggja niður Ballskákardeild BN, vegna fordómrarfullra reglna alþjóðlega ballskákarsambandsins (BALLS) um notkun efnisins "ethanol" (sjá nánar næstu grein fyrir neðan.) Orðrétt er haft eftir fjölmiðlafulltrúa BN  um málið:" Það er með ólíkindum að "BALLS" skuli setja reglur sem samdar eru beinlínis gegn einu félagi. Við treystum á að forseti íslands beiti neitunarvaldi sínu og stoppi þessa valdnýðslu" .Tilvitnun líkur.

kv

Singer


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.01.2006 13:12:19 / singer

Frá Lyfjanefnd BN

Góðir félagar, nú höfum við fengið niðurstöður úr lyfjaprófinu sem nokkrir okkar þurftu að þreyta með þvag og saursýnum eftir æfingu þann 14. janúar síðastliðinn. Útkoma þessara prófa ef mjög mikilvæg fyrir þessa tilteknu leikmenn og skýrir hegðun og getu þeirra þeirra á æfingum.

Við viljum vekja athygli ykkar á því að reglur um alkohol eru okkur í hag -stjórninni til mikils léttis- því eins og stendur í bannlista WADA:

Alkóhól (etanól) er eingöngu bannað í keppni í eftirtöldum íþróttagreinum. Greining þess fer fram með blástursmælingu eða blóðrannsókn. Lágmarksstyrkur etanóls í blóði til þess að um misnotkun teljist vera að ræða er tilgreindur í sviga aftan við hverja íþróttagrein. Íþróttagrein Alþjóðlegt sérsamband Lágmarksstyrkur Akstursíþróttir (FIA) (0.10 g/L) Bogfimi (FITA, IPC) (0.10 g/L) Boules (CMSB, IPC) (0.10 g/L) Flugíþróttir (FAI) (0.20 g/L) Karate (WKF) (0.10 g/L) Knattborðsíþróttir (WCBS) (0.20 g/L) Nútíma fimmtarþraut (UIPM) (0.10 g/L) í skotgreinum Vélbátaíþróttir (UIM) (0.30 g/L) Vélhjólaíþróttir (FIM) (0.10 g/L). 

Niðurstöðurnar eru þessar

Jón Einar Valgeirsson: ÞVAG: Þessi einstaklingur mældist með óeðlilegt magn af 4-hydroxytestosterone (4,17ð vitum ekki hvað það þýðir svo að refsingin verður milduð úr 18 mánaðar keppnisbanni í eins tíma bjórbann. SAUR: Minniháttar bólga en ekkert dularfullt.

Örn Rósmann: ÞVAG: Ekki náðist neitt þvag því einstaklingurinn hefur verið þurr í 15 ár.

SAUR: Stór og eðlilega lyktandi en litur ekki fallegur.

Kristinn Agnar: ÞVAG: Þessi einstaklingur mældist með óeðlilega hátt magn 1-testosterone (17ð óstýrlátur og við hjá WADA væntum þess að hann sé tröll að burðum. Þar sem vökstur hans er svo karlmannlegur telst þetta ekki óeðlilegt í þessu tilviki. Hann fær ekki bann en gæti tekið uppá því að bannfæra með-og/eða mótspilara sína á æfingum eða í leik.

SAUR: Þar sem ílát fyrir saur rúma einungis 3 lítra fékk einstaklingurinn undanþágu frá þessum lið.

Gunnar Larsson: ÞVAG: Þetta sýni hefur vakið verðskuldaða athygli víða um heim fyrir þær sakir að í fyrstalagi var óeðlilegt magn af östrógeni í sýni þessa manns og gæti hann því átt það til af vera svolítið viðkvæmur, hræddur og einmanna í leik og á æfingum. En það sem vakti mesta athygli var það að við DNA próf fannst ættleggur hinnar klónuðu kindar Molly sem lést úr lúngnarbólgu árið 2004. Vekur þetta upp spurningar um hvaðan þetta gen komi en sýnið verður sent til nánari skoðunnar hjá Íslenskri Erfðagreiningu. SAUR: Sýnið var í þannig ásigkomulagi að það verður sent í þáttinn You are what you eat.

Fyrir hönd WADA,

Richard W. POUND, Q.C.

Chairman of the World Anti-Doping Agency


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.01.2006 22:36:06 / singer

Ný könnun

Úrslit síðustu könnunar eru ljósar. Spurt var hver væri efnilegasti leikmaður BN frá upphafi. Úrslitin voru afgerandi 105 atkvæði og næsti með 45. Það er ljóst að netverjar eru inná því að Rósmann sé alltaf að lofa einhverju uppí ermina á sér...... (most promising player). Það er gaman að leika sér að tölum. Td. höfum við reiknað það út að ef allir áhafnarmeðlimir nema einn á Beiti kjósi einu sinni og þessi eini sem eftir er, níutíusinnum fáist 104 atkvæði. En dæmið gengur ekki upp, því það er eitt aukaatkvæði eftir. Þannig að sú samsæriskenning er fallin um sjálft sig. Við óskum Rósmann til hamingju. 

Það er ekki hægt að neita því að hysterísk umræða í fjölmiðlum undanfarna daga hafi haft áhrif á daglegt starf BN. Hér er að sjálfsögðu átt við þau uppgjör sem hafa átt sér stað í herbúðum BN undanfarið og hafa valdið úlfúð. Í kjölfarið kemur ný könnun. Hún segir sig sjálf.

Minnum á krakkakörfuboltamót BN sem verður haldið 19 apríl 2065

kv

Singer


» 5 hafa sagt sína skoðun

13.01.2006 09:58:53 / siggih

Harður heimur knattspyrnunar!!!!

Það er ekki tekið út með sældinni að vera knattspyrnumaður á efsta stigi í dag. Ef menn standa sig ekki á æfingum geta menn einfaldlega dru.... sér heim og þurfa ekkert að hafa fyrir því að mæta aftur.

Ég hvet hér með alla að standa sig á æfingum svo við lendum ekki í þeir aðstöðu að þurfa að reka fleiri menn. Engin er stærri en klúbburinn!!!

Gríðalegar framfarir Boltafélagsins eru farnar að vekja athygli. Þar á meðal er lyfjanefnd ÍSÍ farinn að sýna félaginu áhuga og hefur valið nokkra menn í lyfjapróf og er niðurstöðu að vænta fljótlega. Fleiri gætu verið valdir á næstu dögum þannig að ég bið menn að fara gætilega og kynna sér lyfjabannlistann sem er kominn hér á síðuna.

kv. framkvæmdastjórinn.


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.01.2006 20:50:08 / siggih

Heyr heyr

Aldeilis gott ávarp ágæti formaður. Ég vil skila þakklæti til þess sem kaus mig í stöðu framkvæmdastjóra, takk fyrir að trúa á mig.

Okkur er ekki til setunar boðið og ætlu að hefja árið með krafti, mitt fyrsta verk sem framkvæmdastjóri er að boða til stjórnarfundar á miðnætti  laugardagskvöldsins 7. jan á Hótel Sverrisbúð sem er jafnframt nýja félagsheimili BN.

Og fyrir þá sem voru farnir að óttast um mig, þá er ekkert að óttats. Ég fékk allsvakalega í hnéð í firmamóti Fjarðabyggðar og þurfti að hætta skyndilega þar sem sjúkraþjálfari BN ráðlagði mér að halda ekki áfram keppni þann daginn. Þetta verða svona 1-2 vikur sem ég verð frá æfingum og keppni.

Kv. Framkvæmdastjórinn


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.01.2006 15:03:23 / grétar

Áramótaávarp formans !

Nú árið er liðið og öldin er öll !

 

 



Ágætu félagsmenn,

Nú er Knattspyrnu árið 2005 liðið og stórveldin keppast öll við að dæla í okkur árnaðaróskum, í von um að komast í okkar digru sjóði. Alex sendi Whisky og Eggert forláta bók, whisky-ið er búið enn bókina má fá lánaða með því að smella á linkinn hérna til hægri.

 

 



Á nýju ári hófust mikil fundahöld í stjórn og grasrótarhreyfingu BN´96, þar sem ákveðið var, samræma slöku gengi síðasta sumar(enginn titill), að skifta stjórninni alfarið út. Þó fékk blaðafulltrúinn sérdeilis fyrir ferðina. Standardinn hjá BN´96 er bara ekkert á þessu plani.....

 

 



Ný stjórn var kosin, og er eftirfarandi:

Framkvæmdastjóri: Sigurður Hallur Jónsson, Atkvæði með: 1, á móti: 0 ( að sjálfsögðu!)

Formaður: Grétar Örn Sigfinnsson, Atkvæði með: 1, á móti: 1 (atkvæði sitjandi formans réð úrslitum)

Varaformaður: Gunnar Stefán Larsson, Atkvæði með: 3, á móti: 0 (yfirburðir!)

Heiðurs sætið: Pjétur St Arason, Atkvæði með: 299.998, á móti: 0 (Þjóðaratkvæða greiðsla!)

Gjaldkeri: Karl Már Einarsson, Atkvæði með: 1, á móti: 2 (samt valinn)

Ritari: Jón Hilmar Kárason, Atkvæði með: 1, á móti: 0 (rithandarsýni lágu fyrir)

Blaðafulltrúi: Þorvarður Sigurbjörnsson, Atkvæði með: 29.752, á móti: 0 (ótrúlegt ! “delete cookies”)

Vallarstjóri: Jón Einar Valgeirsson, Atkvæði með: 0, á móti: 0 (sjálfkjörinn)

 

 



Vallarstjóri er endilega beðinn um að koma vallarmálum í lag fyrir sumarið. Undirritaður neitar að spila yfir 5 (heima)leiki á Eiðum.

 

 



Hafin er samningaviðleitan við KSÍ, um að BN´96 taki þátt í bikarkeppninni næsta vor, það er verið að tala um einn til tvo leiki og á undirritaður(stýri viðræðum) fastlega von á að samningar takist. UÍA er einnig á höttunum eftir snilli okkar á sumri komanda.

 

 



Stjórnin fær líka það verkefni fyrir vorleikina að ákveða hvort að við tökum kippu af þeldökkum knattspyrnumönnum frá knattspyrnusambandi Suður Afríku í júní, júlý og út Ágúst svo leikmenn BN eigi auðveldara um vik með að fara í sín sumarfrí. Einnig kom fyrirspurn frá Brasilíu, enn full seint að mati stjónar.

 

 



F.H Stjórnar

Grétar Örn Sigfinnsson

 

 



Taka svo á þessu !


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.01.2006 14:49:20 / singer

Siggi Hallur okkar

Hefur einhver séð hann Sigga Hall?


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.01.2006 18:17:43 / singer

Gleðilegt ár

Firmamót lítilmagnans fór fram á föstudaginn. Til að allir fengju nú eitthvað fallegt var ákveðið að leikmenn BN myndu dreifa sér í liðin. Það var síðan fallegt lið Nípukolls sem tók mótið. Siggi Hallur þurfti því miður að fara á salernið í miðjum leik, og hefur ekkert sést til hans síðan.

Kosningu um besta leikmann BN frá upphafi lauk í gær. Það var breiðholtsundrið Þorvarður sem vann með yfirburðum eða með 42%. Vefstjórn hefur enga ástæðu til að ætla að einhver hafi kosið sjálfan sig oftar en einu sinni, og óskum við honum og stórfjölskyldu hans til hamingju með tímamótin.

Nú er það kosning um efnilegasta leikmanninn frá upphafi. Látið vaða.

kv

Singer


» 0 hafa sagt sína skoðun