BOLTAFÉLAG NORÐFJARÐAR 1996
Könnun
Um hvern sagði Hörður magg eftirfarandi (NOT): Aldrei hefur jafn seinn leikmaður ráðið jafn lítið við hraðann?
Varða
24 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 24
Manneldisdeild
Klukkan
Dagatal
febrúar - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28
FyrriNæsti
05.02.2010 13:54:49 / singer

Þetta gengur ekki lengur með þessa púttnakalla

Nú hefur KSÍ framlengt leikbanninu hjá Varða í 3 ár. Við höfum ákveðið að mótmæla þessu með því að tilkynna ekki lið í bikarkeppni Coca Cola þetta árið.
BN mun ekki spila fyrr en Varði kemur úr leikbanni.

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.10.2009 23:23:00 / singer

Jæja kallinn minn

Staðan er nú eiginlega sú, að innanhústímarnir fara að lognast út af.
Gefum þessu 2 vikur í viðbót.

» 2 hafa sagt sína skoðun

10.09.2009 22:52:00 / singer

Innanhúsboltinn byrjar

þegar formaðurinn hefur jafnað sig af nárameiðslunum

» 1 hafa sagt sína skoðun

16.08.2009 21:56:00 / singer

Svona er þetta bara

Íhaldssamur klúbbur verður að virða hefðirnar. Annars væri hann ekki neitt.
Auk þess hefur lykillinn að hinum glæsilega bikarskáp BN ekki fundist. Til viðbótar því þá var bikarinn of stór fyrir hann

» 8 hafa sagt sína skoðun

12.08.2009 22:21:19 / singer

The boys are on their way to wembley....

....The boys has done it again.

Jæja við verðum víst að spila enn einn leikinn. Leikurinn við Spyrni verður á laugardaginn kl.1400. Ekki er vitað hvar, en víst er að hann verður sunnan Glettings, líklegast þó á Stad´ de France.

Lokahóf á föstudag kl. 1900 á Kaffi LULU

Upphrært:
Leikurinn er á France kl. 1400. Mæting kl.12.00 í Olís. Svo virðist sem gamla ruglið sé enn í gangi. Menn nenna/komast ekki í útileiki. Óákveðnir melda sig nú, bara einn leikur enn!

» 2 hafa sagt sína skoðun

15.07.2009 10:58:42 / singer

Enn eitt reginhneykslið

Það er greinilegt að Guðmundur Hallgrímsson hefur beitt sér í málinu, fyrir litla leiðinlega ljóta barnabarnið. Svo ég tali nú ekki um Jón Ölversson.
Annars hefur Aðal tekið þá einhliða réttlátu ákvörðun að þessi leikur verði skráður í sögubækur BN´96 sem 0-18 tap þar sem Gr-aði skoraði sex sjálfsmörk. Já og Peps heldur sínu.

 





Miðvikudaginn 15. júlí 2008 er tekið fyrir á skrifstofu UÍA mál nr. L2/2009.

 

Boltafélag Norðfjarðar 1996

gegn

               Samvirkjafélagi Eiðaþinghár

 

                   Kæruefni

Með kæru sem send var skrifstofu UÍA 14. júlí sl. kærir BN leik sinn gegn SE í 4. umferð bikarkeppni UÍA sem fram fór að Aggavöggu þann 7. júlí. Tilefni kærunnar er meint brot SE á reglum keppninnar, nánar tiltekið 3. gr. þeirra en þar segir:

 

„Leikmaður telst vera leikmaður þess félags sem hann leikur fyrst með í keppninni. Leikmenn mega skipta einu sinni um félag á keppnistímabilinu. Félagaskiptin skulu skriflega tilkynnt (eyðublað á www.uia.is) til skrifstofu UÍA og öðlast gildi þegar þau hafa verið staðfest af skrifstofu UÍA. Leikmaður getur ekki skipt um félag eftir að félag sem hann hyggst skipta úr eða í hefur lokið keppni í riðli eða deild.“

 

Samkvæmt kærunni lék Geisli Hreinsson með SE í leiknum. Kemur fram í kærunni að sami leikmaður hafi leikið áður með liði Spyrnis bikarkeppni UÍA í sumar. Honum hafi því verið óheimilt að leika með liði SE í keppninni í ár án undangenginna félagaskipta.

 

                   Kröfur

Kærandi krefst þess aðallega að öll mörk í leiknum verði skráð sem sjálfsmörk en til vara að verða úrskurðaður 0-3 sigur í leiknum.

 

                   Andsvör

Ekki hefur verið leitað andsvara kærða að þessu sinni, enda eingöngu til þess fallið að æra óstöðugan.

 

                   Niðurstaða

Leikmaðurinn Geisli Hreinsson hefur samkvæmt leikskýrslum ekki leikið með Spyrni í sumar. Hann hefur hins vegar leikið með Þristi og því er grundvöllur fyrir málflutningi kæranda þó að liðið hafi ekki verið réttilega tilgreint í kærunni.

 

Það vekur óneitanlega athygli að leik þeim sem kærður er lauk með 17-1 sigri kæranda. Við fyrstu sín virtist aðalkrafa kæranda því ganga út á að 17 sjálfsmörk yrðu færð á lið BN ´96 og 1 á lið SE. Niðurstaða leiksins hefði því orðið 1-17 liði SE í vil. Aðalkrafan er þó að ýmsu leyti óskýr og því telur skrifstofa UÍA sér ekki unnt að verða við henni.

 

Um varakröfu kæranda er það að segja að það er meginregla í knattspyrnuréttinum að úrslit leikja skulu ráðast á knattspyrnuvellinum. Í þessu máli er vandséð hvaða hagsmuni kærandi getur mögulega haft af því að fá úrslitum leiksins breytt. Því telur skrifstofa UÍA ekki ástæðu til að víkja frá fyrrgreindri meginreglu.

Kærunni er því vísað frá en lið SE verður áminnt um að tefla ekki fram ólöglegum leikmönnum að viðlögðum stigafrádrætti.

 

                   Úrskurðarorð

Kærunni er vísað frá.

 

f.h. skrifstofu UÍA

 

 

Stefán Bogi Sveinsson (sign)


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.07.2009 11:07:54 / singer

Allt við það sama

Það er ekki leikur næsta sunnudag eins og Peps boðaði í gærkveldi. Hann er 15 júlí.

Ofangreindur Peps kallar greinilega fram kæruviðbrögð þegar hann kemur að leikjum. Nú hefur neðangreind kæra verið lögð inn til ÚÍA:



Launaflsbikarinn

2009

Kærueyðublað

Kærandi (félag): _________BN´96___________ kt.

Kærði (félag): ___________SE_______________ kt.

Leikstaður: Aggavagga

Leikdagur: 7-7-2009

Ástæða kæru: SE notaði ólöglegan leikmann Geisla Hreinsson sem ku hafa spilað í keppninni á þessu ári undir merkjum Spyrnis

Krafa kæranda:

Kærandi krefst þess að öll mörk sem skoruð voru í leiknum verði skráð sem sjálfsmörk.

Varakrafa: Að BN´96 verði dæmdur 3-0 sigur.

Undirskrift tengiliðar félags:

______________________

Athygli er vakin á 8. gr. reglna Bikarkeppni UÍA þar sem fram kemur að kæra verður að hafa borist

skriflega til skrifstofu UÍA eigi síðar en 7 dögum eftir að hinn kærði leikur fór fram. Póstfang skrifstofunnar

er UÍA, Tjarnarási 6, 700 Egilsstaðir. Netfangið er uia@uia.is og faxnúmer er 471-1891.


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.06.2009 23:25:13 / singer

On the run

BN hefur aldrei áður náð annari eins sigurhrinu eins og nú. Reyndar í fyrra en þá töpuðum við 2 leikjum á tæknilegu rothöggi.

Góður leikur við spræka Sjötta menn. Unnum 5-2, þrátt fyrir að Hælmar spilaði seinni hálfleik.

Það er alveg ljóst að ef við spilum áfram með þessu "áframhaldi" munum við ná inní úrslitakeppnina.

Leikur í Aggavöggu við SE næsta söndag í að ég held. Pepsi (Egils) verður með umsjón.



» 0 hafa sagt sína skoðun

25.06.2009 22:52:12 / singer

Leikur á sunnudag

Leikur á sunnudaginn við sjötta kl 18. Hr Guðmundur Ingi Grétarsson, GIG´S
mun verða vaðall.

Kominn er nýr hefðarréttur:
Formaður tekur fyrsta víti og varaformaður það næsta. Hundurinn kemur svo næstur.  Þannig er það bara.

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.06.2009 00:54:05 / singer

Kvöldið var svo fallegt eitt

10 mörk
5 innköst
1 rangstaða
3 aukaspyrnur
Engin spjöld
Just basic

Gott kvöld án Jón Hælmars

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.06.2009 18:22:22 / singer

Stöð

Leikur á stöðvarfirði á morgun Sunnudag, kl 18.00
Einar á Bóli er aðal.
Mæting kl. 15.30 Olís eða 16.00 á Eskifjarðarvelli, eftir leik nobody Vs Gunnar Birgisson

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.05.2009 20:53:00 / singer

Launaflsbikarinn

Ég hef tjáð ÚÍA að líklega verðum við ekki með lið í Launaflsbikarnum í sumar

» 13 hafa sagt sína skoðun

24.05.2009 22:13:39 / singer

Tökum það góða út úr leiknum

Tvennt gott við leikinn við Einherja.
-Nýtt félagsmet
-Sem betur fer höfðu liðleskjurnar vit á því að koma með misasnalegar ástæður fyrir því að mæta ekki, já og misseint. Því ef þeir hefðu verið með, hefðum við örugglega tapað mun stærra 11, 12, 13, 14 - núll.
Hjúkkit mar


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.05.2009 13:13:51 / singer

Hver andsk...

Hvaða andskotar eru að boða æfingar núna?
Það er algjört æfingabann hjá BN fram yfir fyrsta leik. Getur verið að pappakassinn sem er í tveggja ára leikbanni standi fyrir þessu?
Það er einungis 150m úr betri stofunni hjá mér niður á Aggavöggu. Og það er byssugat.

» 2 hafa sagt sína skoðun

12.05.2009 13:13:24 / singer

Hver andsk...

Hvaða andskotar eru að boða æfingar núna?
Það er algjört æfingabann hjá BN fram yfir fyrsta leik. Getur verið að pappakassinn sem er í tveggja ára leikbanni standi fyrir þessu?
Það er einungis 150m úr betri stofunni hjá mér niður á Aggavöggu. Og það er byssugat.

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13